Hi, my name is Marcin -- farmer, technologist. I was born in Poland, now in the U.S. I started a group called Open Source Ecology. We've identified the 50 most important machines that we think it takes for modern life to exist -- things from tractors, bread ovens, circuit makers. Then we set out to create an open source, DIY, do it yourself version that anyone can build and maintain at a fraction of the cost. We call this the Global Village Construction Set.
Hæ, ég heiti Marcin -- bóndi, tæknifræðingur. Ég fæddist í Póllandi, bý núna í Bandaríkjunum. Ég stofnsetti hóp sem kallast Open Source Ecology. Við höfum tekið saman lista yfir 50 mikilvægustu vélarnar sem að okkar mati stuðla að nútíma lifnaðarháttum-- hlutir eins og dráttarvélar, bökunarofnar, rafrásaborð. Síðan reyndum við að hanna útfærslur með opnum aðgangi sem maður getur sjálfur smíðað og eru á allra færi að byggja og viðhalda fyrir brot af kostnaðinum. Við köllum þetta Global Village Construction Set.
So let me tell you a story. So I finished my 20s with a Ph.D. in fusion energy, and I discovered I was useless. I had no practical skills. The world presented me with options, and I took them. I guess you can call it the consumer lifestyle. So I started a farm in Missouri and learned about the economics of farming. I bought a tractor -- then it broke. I paid to get it repaired -- then it broke again. Then pretty soon, I was broke too.
Leyfið mér að segja ykkur sögu. Ég komst á fertugsaldur með doktorsgráðu í kjarnasamruna, og uppgötvaði að ég var gagnslaus. Ég hafði enga verklega hæfni. Heimurinn bauð mér upp á kosti sem ég nýtti mér. Ætli megi ekki kalla það neyslulífsstíl. Þannig að ég setti á fót bóndabýli í Missouri og kynntist hagfræði búskapar, Ég keypti dráttarvél -- sem bilaði. Ég borgaði fyrir viðgerð -- og hún bilaði aftur. Skömmu seinna var ég kominn á kúpuna.
I realized that the truly appropriate, low-cost tools that I needed to start a sustainable farm and settlement just didn't exist yet. I needed tools that were robust, modular, highly efficient and optimized, low-cost, made from local and recycled materials that would last a lifetime, not designed for obsolescence. I found that I would have to build them myself. So I did just that. And I tested them. And I found that industrial productivity can be achieved on a small scale.
Ég skildi þá að ódýru tækin sem hentuðu mér og ég þurfti til að hefja sjálfbæran búskap og landnám voru bara ekki til ennþá. Ég þurfti tæki sem væri sterkbyggð, stöðluð, mjög skilvirk og hagstæð, ódýr, unnin úr endurunnu og aðgengilegu hráefni sem myndi endast mannsævi, ekki hönnuð til að verða úrelt. Ég áttaði mig á því að ég yrði að smíða þau sjálfur. Svo ég gerði það. Og prófaði þau. Og uppgötvaði að iðnaðarframleiðni er hægt að ná á litlum skala.
So then I published the 3D designs, schematics, instructional videos and budgets on a wiki. Then contributors from all over the world began showing up, prototyping new machines during dedicated project visits. So far, we have prototyped eight of the 50 machines. And now the project is beginning to grow on its own.
Ég gaf út þrívíddarteikningarnar, skýringarmyndir leiðbeiningarmyndbönd og kostnaðaráætlanir sem wiki. Í framhaldi af því fóru ýmsir hvaðanæva að úr heiminum að mæta á svæðið og leggja til frumgerðir af nýjum vélum í sérstökum verkefnaheimsóknum. Nú þegar höfum við gert frumgerðir af átta af þessum 50 vélum. Og nú er verkefnið farið að vaxa af sjálfu sér.
We know that open source has succeeded with tools for managing knowledge and creativity. And the same is starting to happen with hardware too. We're focusing on hardware because it is hardware that can change people's lives in such tangible material ways. If we can lower the barriers to farming, building, manufacturing, then we can unleash just massive amounts of human potential.
Við vitum að opinn aðgangur virkar þegar um er að ræða tækni sem kemur skipulagi á þekkingu og sköpunargáfu. Og nú er það sama að gerast með vélbúnað. Við leggjum áherslu á vélbúnað því það er hann sem getur breytt lífi fólks á svo áþreifanlega efnislegan hátt. Ef við getum rutt hindrunum úr vegi búskapar, byggingar, framleiðslu getum við sleppt lausu gríðarlegu magni möguleika.
That's not only in the developing world. Our tools are being made for the American farmer, builder, entrepreneur, maker. We've seen lots of excitement from these people, who can now start a construction business, parts manufacturing, organic CSA or just selling power back to the grid. Our goal is a repository of published designs so clear, so complete, that a single burned DVD is effectively a civilization starter kit.
Ekki aðeins í þróunarríkjum. Tækin okkar eru gerð fyrir bandaríska bóndann, húsbyggjandann, frumkvöðulinn, framleiðandann. Við höfum orðið vör við mikinn áhuga fólks sem nú getur stofnað verktakafyrirtæki, íhlutaframleiðslu, lífræna samfélagslega studda akuryrkju eða bara orkuframleiðslu og -sölu. Markmið okkar er að koma upp hönnunarsafni sem er svo skýrt og ítarlegt að einn brenndur DVD-diskur gæti í raun verið allt sem þyrfti til að leggja drög að siðmenningu.
I've planted a hundred trees in a day. I've pressed 5,000 bricks in one day from the dirt beneath my feet and built a tractor in six days. From what I've seen, this is only the beginning.
Ég hef gróðursett hundrað tré á einum degi. Ég hef steypt 5.000 múrsteina á einum degi úr jarðvegi undan fótunum á mér og smíðað dráttarvél á sex dögum. Mér sýnist þetta aðeins vera upphafið.
If this idea is truly sound, then the implications are significant. A greater distribution of the means of production, environmentally sound supply chains, and a newly relevant DIY maker culture can hope to transcend artificial scarcity. We're exploring the limits of what we all can do to make a better world with open hardware technology.
Ef hugmyndin er í raun heilsteypt geta áhrifin orðið veruleg. Meiri útbreiðsla framleiðslutækja, umhverfisvænar birgðalínur, og ný, viðeigandi sjálfsbjargarmenning geta mögulega hafið okkur yfir tilbúinn skort. Við erum að kanna mörk þess sem í okkar valdi er til að skapa betri heim með opnum aðgangi að vélbúnaðartækni.
Thank you.
Takk fyrir.
(Applause)
(Lófaklapp)